
Já hér koma þær... haha.. nei svo sem ekkert merkilegt annað en að það koma hér myndir af verki fimmtudagsins. Við vorum úti í morgun að taka til í hlaðinu og smá inni í hlöðu, en sonur minn er einstaklega laginn að byggja eitthvað í gangveginum... Núna tók hann tvær dýnur og setti mitt í gangveginn og girti af með gömlu girðingunni frá Trangbækvej . Magnaður. Þá fór ég bara inn að vaska upp og prufa að setja smá í kassa og frá, þá kom hann og vildi vera með. Svo borðaðð hann 2 banana, 2 kívi, 1 epli og fékk svo pínu nammi í tilefni dagsins. Þannig að gerið svo vel að dást að mér og verki mínu....

Her er brotrenna dagsins, upp að wc hurðinni og að skorsteininum, í kring um gamla ketilinn, sem fer út þegar vinir mínir frá Spøttrup koma og setja nýjan fyrir mig.

Skorsteinninn fékk svo sem að finna fyrir því líka.

Hér er smá yfirlitsmynd yfir steina og múrbrot, ekki það ég naut dyggrar aðstoðar tveggja drengja við að fá eitthvað út, en svo kom að því að þeir fengu nóg og fóru að leika sér.

Ég skaust upp á loft að sækja hamar, í leiðinni tók ég bara kvikindið sem stóð og hæddist að mér þarna í hálfrökkrinu. Hann féll eins og sönn hetja. Held að stóru steinarnir séu flestir á burt, kannski leynist eiithvað þarna undir en ji hvað ég er ánægð með að hann er farinn niður.

Sjáiði flotta loftið mitt. í í í í í hí

Bara tekið ofan í holuna, með öllu smotteríinu í kring.

Loft yfirlit henda lausa dótinu út moka lausa ryki og múrbrotum út líka og svo setja upp ramma fyrir einangrun og einangrun, rafvirkinn kemur og svo má ég loka. Þetta hljómar voða auðvellt svona svart á hvítu.

Þá erum við komn niður aftur og skorsteinninn sem þar var er næstum á burt.

Bara múr og rusl, en líka til að hafa heimildirnar á hreinu.
Bemærk at det bliver vist i dit Facebook feed, hvis du synes godt om indlægget.