
Þetta er afleiðing niðurbrotsins, skorsteinninn er kominn í gólfhæð.
Er einhver sem gerir sér grein fyrir hversu margir múrsteinar eru í einum andskotans skorsteini. Þar fyrir utan fyllist allt af ryki og sóti, en við höfum tekið 8 fötur af því niður og munum halda ótrauð áfram.

Yfirlitsmynd af loftinu, með rusli og kössum og mublum, sem eru á leið niður.

Bara önnur yfirlitsmynd, svo ég geti klappað mér á öxlina þegar ruslið verður komið niður af loftinu.

Mynd af næsta fórnarlambi, skorsteinn múmer tvö... hann skelfur við tilhugsunina, en hann er ekki til gagns eða prýði svo hann fellur.

Bara af múrsteinum og ryki, megnið er komið út en mikið eftir þó.

Bjarki með verkfærakassann sinn.

Já frekar stoltur eigandi

Það þarf aðeins að fikta.. málið er að það þarf að taka hann af þakinu líka þennann, ég bara er ekki alveg viss um verklagið á svoleiðis framkvæmdum, ætlaði að gá hvort hann héldi, en er að gugna á því..

Aftur af ryki og mússteinum.

já og ef einhvern langar að gista, hér er svefnsófi, hrikalega góður...

Frábært útsýni þegar strompurinn er horfinn, mig hlakkar mikið til að sýna ykkur myndir þegar einangrunin verður komin upp og nýju bitarnir og klæðningin, ég get bara varla beðið.

Enn ein tekin fra tröppunum og inn í rýmið.

Við höfum sum sé baksað við að fjarlægja vegsummerki í dag. Ég sló einhvernvegin án þess að slá mig í gær og er í erfiðleikum með aðra hendina þar sem fingurnir vilja ekki hreifa sig án verkja, en það hlýtur að jefna sig með aðeins meiri vinnu. Bjarki er líka á fullu, með verkfærakassann sinn og tékkar á halla á sperrum og hamrar þar sem þess þarf, hann mokar í fötur og hendir múrsteinum út. Færir mömmu sinni kassa sem eiga að fara af loftinu. Alveg dásamlegt vinnudýr, sem er svo gaman að vnna með. Það koma hinar ýmsu hugmyndir og þetta er svo gaman.
Hvenær koma hin vinnudýrin í heimsókn??
Bestu kveðjur og munið að halda snjónum þar til við Bjarki höfum fengið að njóta hans.
Perla