
Já nú er loksins farið að starta lestinni sem ætlar að leiða mig ígegn um þessar breytingar á húsinu.
Í gær kom rafvirkinn og lagði þær línur sem hann þarf að vinna með, ekki nóg með það hann kíkti upp á loftið og hreinlega gaf mér flottasta, ódýrasta og öruggasta ráðið til að flytja hanabitana. Að kaupa efni sem heiti..... eitthvað sem ég man ekki .... en anyhow, þá eru það bitar sem eru 15x5 cm og þeir sagast í sama halla og sperrurnar og verða síðan negldir, skrúfaðir eða saumaðir fastir ofar á bitana, þá get ég fjarlægt hina. Þetta eru tveir bitar fyrir hvert hanaband og svo getur maður leikið sér með lýsingu og háloft á þeim þar sem þeir eru sterkir.
maður frá sp0ttrup og gerði mér stórkostlegt tilboð í kyndingu sem með öllu mun kosta mig 89 þúsund danskar, en það er með vinnu og moms, svo það er vel sloppið þetta er það sem aðrir hafa boðið og þá átti eftir að setja ofaní skattinn og vantaði helling á vinnuna, td rafmagn og steypuvinnu. Hann samþykkti að ég ynni alla grófvinnu og svo tækju þeir við', sem er nú annað en kallinn sem kom um daginn, og það að auki ef mig vantaði verkfæri til að vinna með mætti ég hafa samband við hann, hann mundi lána mér þau svo grófvinnan gengi betur.
Ég þarf núna að tæma innganginn okkar og loka honum, þá get ég byrjað að grafa, brjóta og berja eins og mig lystir.
Ég þarf að fara 40 cm niður og svo koma þeir og leggja rörin, þá má ég einangra og leggja reo net þá koma þeirog leggja gólfhitann held ég og svo er að loka ruslinu og setja baðherbergisinnyflin inn, og finisera með flísum, ljósum og skápum. Ég er nú alveg í skýjunum að þetta gangi nú svona allt í einu eins og smurð vél.
Allir vinnumennirnir þurfa 3-4 daga til að koma sér hiongað, með réttu tólon og tengingarnar svo þegar ég er að verða búin þá hringi ég eftir þeim og það tekur ca 3 daga að gera vinnuna þeirra. Enn hvað ég er hamingjusöm í dag.
Knús Perla
Bemærk at det bliver vist i dit Facebook feed, hvis du synes godt om indlægget.