allt annað en húsbygging
Ég ætlaði nú ekki að hafa hér annað en húsrif og uppbyggingu en nú bara verð ég að segja frá.  Þannig er að Bjarki er hjá fjölskyldu, eina helgi í mánuði og tvo miðvikudaga.  Það hefur gengið ágætlega, auðvitað erum við ekki alltaf sammála um allt en mér var heldur betur brugðið í morgun.  Ég hringdi til að fá að tala við kommúnuna, þeas um hvernig fyrirkomulagði með svona helgarbörn mundi vera almennt.  Því það hefur verið smá ósamkomulag undanfarið og þau hafa bara sent sms og ég á að sækja Bjarka.  Ég er að vonum ekki alveg sátt við þetta fyrirkomulag þar sem mér finnast þau vera að kvarta undan smámunum og því sem upp á kemur hjá öllum.  Þá segir konan í kommúnunni mér að þau hafi sagt upp samningnum, vegna þess að þau séu með annað barn og þeim komi nú ekki alveg nógu vel saman Bjarka og honum. Bjarki krefst meira og meira af þeim.   Að auki sé ég áhugalaus um barnið mitt, hann sé sem fullorðin einstaklingur í mínum augum og axli ábyrgð sem slíkur.  Þar af leiðandi þegar þau setja reglur sé hann ekki til í að hlýða.

Ég er gersamlega miður mín, hvað er eiginlega að.  Bjarki krefst meira ef ég hef gesti, hvað þá ef ég fengi annað barn sem alltaf væri hér, hann er vanur að vera þarna sem blóm í eggi og allt í einu ryðst inn drengur sem ruglar hans veröld hjá þeim.  Hann verður erfiður og þau geta ekki höndlað það.  En hvernig þau fá út að ég hafi ekki áhuga eða tíma fyrir barnið mitt er mér algerlega óskiljanlegt.  

Ég hef í hyggju að tala við mína konu hjá kommúnunni 10 mars og þá ætla ég að biðja um fund með þessum helgarforeldrum og ég vil gjarnan fá rökstuðning fyrir þessum ásökunum, sem mér finnst þetta vera.  Ég vil að kommúnukonan verði með því annars yrði þetta ásakanir frá okkur báðum, ég í bullandi vörn og þau rakka mig niður.  

Skil heldur ekki af hverju helgarforeldrarnir höfðu ekki samband við mig og sögðu að þeim þætti samstarfið ekki nógu gott.  Ég kem bara algerlega af fjöllum.

Við búum í sama litla bæjarfélaginu, erum með börn í sama leikskóla, verslum hjá sama kaupmanni, við munum næstum örugglega hittast, frekar oft.  Þar sem möguleikar okkar eru hinir sömu í þessu bæjarfélagi til að sækja þá þjónustu sem þar er.

Nóg um það er farin að gera eitthvað skemmtilegt, rífa eitthvað niður helst...  
knús á línuna.  Perla

Smá meira slúður....  nágrannakona mín sem vinnur sem dagmamma eins og helgarfj0lskyldumamman, skemmtileg kynni þetta af nýja íbúanum í nörre rind ha,  jæja hún segir mér að hún sé búin að vera að hugsa og henni finnist réttast að segja mér að Benta sem er Helgarmamma Bjarka sé að slúðra um mig.  Nágranninn þekkir Bentu ekki neitt en hefur eftir 3ja aðila að ég sendi Bjarka títt og oft af stað veikan.  Barnið mitt er nú bara voða sjaldan veikt.  Ég fór til dagmömmunar hans gömlu og spurði hvernig hún mundi lýsa okkur og hún gapti bara.  Leikskólinn sagði að þau mundu standa 100 % á bak við mig, hann væri nú bara ekki mikið veikur og ef hann er þá er honum haldið heima við.  

´Jæja haldiði að þetta sé allt, nei, ó nei,  ég tek heldur ekki símann þegar þau hringja, en ef þau taka síma dótturinnar þá svara ég.  Fyrst af öllu þá er ég svo forvitin að ég svara símanum,  þau hringja með númeraleynd og ég get þess vegna ekki vitað að þau séu að hringja, get hedur ekki hringt í þau í hvert sinn sem númeraleynd hringir í mig.  Vaninn er nú að samskiptin fara fram á sms um svo ég skil ekki vndamálið. Annað er jú að sé ég nú í baði, þá tek ég ekki símann og það þriðja er að ef ég sé númeraleynd og Bjarki er hjá þeim tek ég umsvifalaust símann, það gæti jú verið alvarlegt.  

Konuræfillinn ásakar mig fyrir vanrækslu á syni mínum og henni ber skilyrðislaust að tilkynna mig hafi hún slíkar grunsemdir, það hefur hún þó ekki gert, og svo er þetta brot á þagnnarskyldunni sem hvílir á samningnum.  Kannski hef ég nú brotið hana líka hér og nú en það skilur hvort sem er enginn þetta hrognamál.  

að kemur hingað koma frá kommúnunni á morgun og við ræðum málin, finnum aðra fjölskyldu og ég bið um lokafund með þeim til að gefa þeim tækifæri til að rökstyðja þessar ásakanir.   Er nokkuð kúl á því bara ennþá.  Er samt reið og finnst ég órétti beitt.+

Knús Perla
Bemærk at det bliver vist i dit Facebook feed, hvis du synes godt om indlægget.
Kommentarer Viser 0 / 0 | Vis alle
Du skal logge ind for at kunne skrive en kommentar
Log ind og returner til denne side
Stem:
af Perlan
29-02-2008 09:30
Tags: 
 
Sider der linker til dette indlæg
Kommentarer: 0
Visninger: 360
 
Tidligere indlæg:
 
06-08-2008 16:57, 2 kommentarer
 
30-07-2008 09:54, 1 kommentar
 
29-07-2008 20:37, 0 kommentarer
 
28-07-2008 16:10, 5 kommentarer
 
09-07-2008 13:27, 0 kommentarer
 
25-06-2008 22:06, 0 kommentarer
 
18-06-2008 02:00, 1 kommentar
 
04-06-2008 23:19, 4 kommentarer
 
29-05-2008 10:09, 1 kommentar
 
24-05-2008 22:14, 1 kommentar
 
Funktioner:
Anmeld misbrug
Send til ven
 
RSS feed for blog indlæg
© 2006-2010 VIX ApS | Retningslinjer | Copyright informationAnnoncering | Ledige stillinger | Om siden