Jæja þá er ég að hugsa um að sýna ykkur hver árangurinn af niðurrifum hingað til er orðinn. Er ekki enn búin að gefa mér tíma í að læra á albúmin, en þegar þar að kemur þá getið þið vonandi skoðað allt þar undir í stað þess að vera að fletta blogga á milli. Er búin að panta kamar, sem verður í hlaðinu og þegar hann kemur, byrjar fjörið. Þá verður allt mölvað mélinu minna og þá fer uppbyggingin líka að geta byrjað. Jæja gerið svo vel.

Já svona ca litu veggirnir út þegar betrekkið var farið af, þurfti að skraba þetta af og útkoman verður þá svona

Allt miklu betra og fallegra.

Þar sem flísarnar voru múraðar á veggin urðu þessir fallegu klesstu múrlistaverk eftir á veggnum þegar flísarnar hrundu af.

En eftir smá hamagang og læti þá verður veggurinn svona sléttur. Er nú ekki búin með þessar dásamlegu breytingar á veggnum. Hugsa ég láti þær bara bíða þar til kamarinn verður kominn hér í hlað. Nenni ekki þessu rykdrulluverki þegar ég þarf að þrífa eftir mig á hverjum degi. Segi við sjálfa mig að þegar höfum kamarinn hér utan við þá get ég bara bviðrotið bramlað og pússað og snyrt og svo lokað á eftir mér. Farið í bað í ferðabaðinu okkar og setið á hreinu klósetti ef þannig vill til. Svo nú eru bara rólegheit þar til herlegheitin birtast. Ætti að vera uþb vika í kassann.

Já þetta mundi vera veggurinn við vaskinn ef einhver ekki áttar sig á mér.

Og hér er dollan dásamlega.
Þá er ég allavega búin að gefa skýrslu um þennann áfanga.
Lifið heil.
Bemærk at det bliver vist i dit Facebook feed, hvis du synes godt om indlægget.