|
Veðrið lokkar mig út.
 Hér innandyra gerist nú ekki mikið, þar sem veðrið lokkar mig út. Er að grisja í "skóginum", rotin tré sem brotna þegar ég lít á þau. Stóru trén hér á flötinni sem fara ótrúlega í taugarnar á mer. Ætti nú að hundskast út með myndavélina og taka myndir fyrir þetta blogg. Geri það seinna í dag. Ótrúlega gaman að sjá vorlaukana sem eru að stinga sér hver á fætur öðrum hér upp úr laufferginu. Hef séð vetrargosa, krókusa og tété páskaliljur enn sem komið er. Uppi á háalofti eru margir gamlir svartir pottar, ætti að truntast upp stigann sækja þá og gróðursetja laukana sem ég á í fötu inni í bílskúr, gæti verið að það kæmi eitthvað spennandi út úr því. Ekki vegna þess að það er takmarkað plássið í garðinum, en ég er að reyna að vera skynsöm!!! haha. Jú ég veit ekki enn hvað kemur hér upp undan vetri. Gæti vel verið að það sé eitthvað sem kerlingunni líkar. Svo nú fer allt í potta og ég get skrásett garðinn Eftir því sem upp kemur. Sem betur fer er nú ekki neitt risa beð, og mín áætlun hljómar upp á hvít, blá og rauð blóm. Liljur og nothæf blóm og tré eða runna. Á næstu 14 árum verður hér sett niður eftir því sem veðráttan hér býður upp á... ávaxtatré og runnar með ætum berjum, rabarbari og þannig. Svo verður haldin uppskeruhátíð í garðinum. Veit velað ég kem ekki til að borða allt góðgætið, en þegar maður getur haft perutré í garðinum hversvegna þá hafa hangibirki? En það er svo bara mín skoðun á málinu. Við mæðginin eigum nú eftir að kíkja út þegar birtan fer að laumast inn í garðinn og þá tek ég myndir af núverandi ásigkomulagi garðsins. En ekki vænta stórbreytinga þar á næstunni, garðurinn er langtímaverkefni, þar sem ég get ekki verið í baðherbergi að brjóta niður og að fella tré samtímis, því miður  Góðar stundir.
Bemærk at det bliver vist i dit Facebook feed, hvis du synes godt om indlægget.
|
 |
09-02-2008 06:43
|
| Kommentarer: |
1 |
| Visninger: |
413 |
|
|
06-08-2008 16:57, 2 kommentarer
|
|
30-07-2008 09:54, 1 kommentar
|
|
29-07-2008 20:37, 0 kommentarer
|
|
28-07-2008 16:10, 5 kommentarer
|
|
09-07-2008 13:27, 0 kommentarer
|
|
25-06-2008 22:06, 0 kommentarer
|
|
18-06-2008 02:00, 1 kommentar
|
|
04-06-2008 23:19, 4 kommentarer
|
|
29-05-2008 10:09, 1 kommentar
|
|
24-05-2008 22:14, 1 kommentar
|
Funktioner:
|
| |
|