Baðið strípað í pörtum.

Ja hérna þá er að ráðast í að segja frá baðherbergisframkvæmdum og setja svo nokkrar myndir með. Baðið er frekar gamaldags og frekar skítugt að innræti. Ekki mikið hægt að gera vegna aldurs og fyrri starfa. Hér hafði jú búið gamall maður á 83 aldursári og hann hefur, vel að skilja, meiri áhuga á landbúnaðartækjum, ónothæfum þess vegna en hreingerningu. Enga hafði hann húshjálpina og miðað við skítinn í gripahúsunum er þetta jú bara smotterí og bara fyrir tuskuóðar kerlingar að vera að fetta fingur í það. EN allavega þá er líka K2 í baðherberginu, sem þýðir að þar er skaði sem verður að bæta ellegar getur farið svo að skaðinn fari að breiða sér og valda frekari skemmdum á kofaskrípinu.
Herbergið er 7 m2 og lagt flísum að mestu leiti. Einungis 50 60 cm kafli niður við loft er lagður eðal veggfóðri, einstaklega smart og í klikkuðum lit! Einn gluggi er í rýminu og tvær hurðar, til að auðvellda snaran aðgang að þessu mikilvæga herbergi.
Þarna inni voru og eru, klósett, rúlluhaldari, lítil hilla, sem einusinni var hvít en er núna grágul, sturtuaðstaða með hengi, 7 krókar út um allt fyrir alls konar snúruverk, vaskur spegill, eitt ljós, gamall skápur með hillum og svo steyptur stubbur til að setja þvottavél á.
Nákvæmlega ein innstunga til að setja þvottavélina í, svona fast og ljósarofinn er utanáliggjandi við báðar hurðir.
Er að hugsa um að láta myndirnar tala fyrir sig og skýra þær bad 1 bad2 og svo framvegis þar til ég hef náð hringnum !! Myndirnar koma örskömmu síðar.

Hér býð ég inn á baðið.Takið sérstaklega eftir þessum einstaklega smarta vaski, þrátt fyrir að hafa séð betri daga, þjónar hann dyggilega og nýtist til handþvotta. Verst hann verður ekkert skárri sama hvað maður vaskar hendur oft í honum. Já og forláta skápurinn á veggnum, hefur eflaust verið voða fínn þarna í denn... mundi ekki geyma rottu í honum.

Einstakt klósett, maður svífur sem á skýi.... Takið eftir mjög svo hvítum flísum í kring.

Komin í hornið, dyrnar liggja inn í meyjarskemmuna.

Gluggagarmurinn er þarna, svo óþéttur að vindurinn lætur sér ekkert muna um að lofta út þrátt fyrir að glugginn sé eftir minni meiningu lokaður.

Sturtan sem enginn ætti að skammast sín fyrir. Hún virkar. Er það ekki málið, bara að reka sig ekki utan í neitt á leið út, aldrei að vita hvort maður þyrfti í bað aftur.

Já bara aftur til ámynnignar!

Meira til að sýna flísarnar. Hef gert ótal tilraunir, á bara eftir að prófa sprengju...

Hér stóð þvottavél gamla mannsins, ekkert meir um það að segja.

Niðurfall sem hefur þjónað dyggilega, fer brátt á eftirlaun.
Já þetta eru myndirnar af baðinu eins og það var. Velbekomme.