hvað er að gerast þarna??
Já bara smá hér, baðið er tilbúið til gólflagningar, vantar reyndar hitann i handklæðaofninn en það kemur ofan á flamingóið svo það er á áætlun.  Baðið er hreinsað út og algerlega klárt.  Í þvottahúsinu er í augnablikinu 1 til 2 rúmmetrar af mold, sandi og steinum sem þarfnast flutnings, er búin að moka og moka í dag svo það fer að styttast.  þegar það er búið þarf að taka panelinn af og allar festingar fyrir rör og rörin, það færi vel að það gerðist á morgun til dæmis.  
Það kom hér karl frá gasinu og tók mælinn og sagðist mundi klaga yfir þeirri ósæmandi hegðun sem ég varð fyrir hjá manninum í símanum, hann hefði með það sama átt að bjóða mér mann hingað til að tékka á hlutunum.  Þetta væri ekki í fyrsta sinn sem hann heyrði að kúnnarnir væru hraktir í burtu.
Steinar tók svo rækilega til í bílskúrnum hér á sunnudag að ég kannast nú bara ekki við mig þar inni...  En mikið er indislegt að horfa til þess að þetta er allt að fara rólega í þá áttina.
Verkstæðið er alveg að verða kalkað og það er svoooooo flott, svo kemur veggfóður þar sem verkfærin munu hanga og hillur í endann þar sem olíutankurinn var.  Þá er ég nokkuð sátt bara við allt saman, því þá fer verkdtæðið út úr bílskúrnun og baðherbergið fer nú hvað á hverju, ca 2 - 3 vikur líka að hverfa þaðaðn út.
Ætli ég verði´þá ekki að fara að dytta að bíldruslunni, fyrst það er komið pláss.  Það þarf að laga nokkrar skrámur og ljós og setja nýtt loftnet og svona pínu dútl.
Sendi af stað fyrir spurn í gær um málningu á þakið, hvort það væri raunhæfur möguleiki og bíð svars.
Nágranni minn ungi og duglegi er að einagra húsið sitt eins og ég ætla að gera og hann hefur boðist til að kaupa inn fyrir mig, þar sem hann fær hörkuafslátt og það þykir mér vel boðið og ég þakkaði pent fyrir mig.
Annars er kominn tími á að halda áfram, eða fara í sturtu og segja þetta gott í dag, þar til í kvöld, þegar það hefur kólnað pínu.

knús á klakann.... Perla
Bemærk at det bliver vist i dit Facebook feed, hvis du synes godt om indlægget.
Kommentarer Viser 0 / 0 | Vis alle
Du skal logge ind for at kunne skrive en kommentar
Log ind og returner til denne side
Stem:
af Perlan
09-07-2008 13:27
Tags: 
 
Sider der linker til dette indlæg
Kommentarer: 0
Visninger: 404
 
Tidligere indlæg:
 
06-08-2008 16:57, 2 kommentarer
 
30-07-2008 09:54, 1 kommentar
 
29-07-2008 20:37, 0 kommentarer
 
28-07-2008 16:10, 5 kommentarer
 
09-07-2008 13:27, 0 kommentarer
 
25-06-2008 22:06, 0 kommentarer
 
18-06-2008 02:00, 1 kommentar
 
04-06-2008 23:19, 4 kommentarer
 
29-05-2008 10:09, 1 kommentar
 
24-05-2008 22:14, 1 kommentar
 
Funktioner:
Anmeld misbrug
Send til ven
 
RSS feed for blog indlæg
© 2006-2010 VIX ApS | Retningslinjer | Copyright informationAnnoncering | Ledige stillinger | Om siden