´koma sumir siglandi

já af körlum mínum frá því síðast er það að frétta að þeir birtust og grófu upp fyrir klóakinu mánudeginum eftir að þeir hurfu hér..  á undanlegan hátt.  Skítt með það.  Klóakið ætti að vera í lagi núna.  Er búin að strípa baðið og það þarf bara að brjóta restina og laga allar leiðslur og rör svo tryggingarnar vilji taka ábyrgð á því springi eitthvað í framtíðinni.  Panta færiband á morgun til að ferja ruslið út.  
Þeir sem ætla að skipta um miðstöð koma svo á mánudaginn kemur og þá verður aldeilis partý hér.  Slökkti á gasinu í dag.  fékk reikning upp á 160 þúsund fyrir 4 mánuði, var ekki kát og hringdi.  J'u jú þú hefur bara kynt svona mikið í vetur.  ALDEILIS EKKI. allir nema ábúendur kvarta undan kulda.  Við Bjarki erum svona voða kát en það bara telur sem það telur.  Svo eftir að hafa fengið að vita að ég væri heimsk kelling þá fór ég og slökkti á gasinu.  Ekki aur í þetta helvíti og hér verður lokað fyrir þetta rugl. Ég fæ mér kút og bisa með hann í frístundum þurfi ég á gasi að halda hér í framtíðinni.  
Svo gróf ég til kína í dag úti á hlaðinu og merkilegt, fann lekan hana hér meter ogeitthvað niðri í jörð.  Hafi égf einhverntíman efast um sæluvist moldvörpunnar í heimkynnum sínum, hef ég fengið sönnnun hennar núna... hihi.   En það ætti að reddast snarlega.  
Annars er nú lítið að frétta, moldin frá trampolingreftri fer smám saman hér út í kanta.
Er eiginlega orðin hálf dofin eftir aðgerðarleysi.. haha.  En nú glittir í endann á öllu hafaríinu, þegar kyndingin kemur þá kemur nýtt gólf í bað og þvottahús og svo rafmagn og rör og allt það rusl og svo skápar og klósett sem er eins gott að virki og baðkarið sem ég þrái að leggja mig í og sötra vín í og lesa góða bók á meðan ég hálfdotta og vakna upp með sápuvatn í lungunum, dær druknuð í herlegheitunum...  Flísarnar ættu svo að hoppa á veggina fljótlega á eftir og vúptí, martröðinni er lokið.
Hann kom hér í dag sérlegur vinur minn frá tryggingunum og sagði mér að þótt ég hefði gengið í gegn um gólfið, bæri þeim ekki að bæta mér það þar sem gamalt og rotið væri.  OK og svo að það þyrfti ekki að múra þrátt fyrir að múrinn kæmi niður að innanverðu.  Ég er svona í smá vanda með það að trúa karli en mun hafa samband við múrarameistara á næstu vikum til að staðfesta eða neita þessu.
Ég skal reyna að henda inn myndum frá síðustu helgi hér þegar allir komu og gerðu þvílíkt kraftaverk hér með mér.  Við vorum 9 og átum okkur mett af lambi á eftir.. Ætli maður geti fengið kjöt af þessum ísbjarnarflækingum, örugglega gott í danskar fríkadellur. 

Knús Perla 

Bemærk at det bliver vist i dit Facebook feed, hvis du synes godt om indlægget.
Kommentarer Viser 1 / 1 | Vis alle
Du skal logge ind for at kunne skrive en kommentar
Log ind og returner til denne side
Gestur
Gestur, 19-06-2008 17:38
Ja það er synd að segja að húsráðendur séu atvinnulausir. jesús minn, ég blikna við að lesa þetta allt saman. MMMMMMMM það veit ég að það á eftir að vera algjör snilld að leggjast í baðkarið og máttu nú aldeilis njóta þess vel. Já hlakka til að sjá myndirnar og lesa næsta blogg. Knús og kossar til ykkar Bjarka, Sigga Sif.
Stem:
af Perlan
18-06-2008 02:00
Tags: 
 
Sider der linker til dette indlæg
Kommentarer: 1
Visninger: 367
 
Tidligere indlæg:
 
06-08-2008 16:57, 2 kommentarer
 
30-07-2008 09:54, 1 kommentar
 
29-07-2008 20:37, 0 kommentarer
 
28-07-2008 16:10, 5 kommentarer
 
09-07-2008 13:27, 0 kommentarer
 
25-06-2008 22:06, 0 kommentarer
 
18-06-2008 02:00, 1 kommentar
 
04-06-2008 23:19, 4 kommentarer
 
29-05-2008 10:09, 1 kommentar
 
24-05-2008 22:14, 1 kommentar
 
Funktioner:
Anmeld misbrug
Send til ven
 
RSS feed for blog indlæg
© 2006-2010 VIX ApS | Retningslinjer | Copyright informationAnnoncering | Ledige stillinger | Om siden