|
hvernig gengur kerling?
Alveg dæmalaust bara, ég hringdi í gær og bar mig illa við tryggingafélagið og sagði vont af klóakmálum hér. Vildi vita stöðu mála og ég hélt áfram þar til dama ein viðkunnanleg bauð mér klóakmeistara að líta á málið. Sem ég þakkaði náðarsamlegast fyrir. Byrjaði frábærlega, þegar ég var að smyrja nestið hans Bjarka koma vaskir menn, tveir að tölu og ganga hraustlega til verks, rífa skálina lausa með höndunum einum saman, losuðu auðvitað um skrúfur og svoleiðis drasl fyrst, hvað hélduði!!! Já já og svo var dröslast með myndavé inn og spáð og spekúlerað. Ég þóttist voða heppin. Nú koma kauðar út og segjast því miður ekki sjá neitt með sinni vél og meistari sjálfur komi og kíki á málin. Þeir fari í annað rétt á meðan og komi svo og brjóti upp eftir meistarans máli og nú á að kippa öllu í liðinn. Enn finnst mér ég vera lukkunnarpamfíll í annað sinn í dag. En tíminn líður og Perlan bíður, meistari hefur eitthvað villst á vegi sínum því ekki hefur hann sést og ég er frekar leið bara. Vonasðist eftir að við mundum nú kippa málum í lag einn, tveir og þrír. Svo í staðinn hef ég dundað mér í rólegheitum með 1 tonn af hellum. Fyrst lyft þeim upp á vagninn og niður aftur. Og mín bíða 3 tonn í allt, hjá mjög góðu fólki sem vill losna við steinana. Svo fyrir að ég fjarlægi þá fæ ég að eiga skíttið. Er að safna í hlaðið sem eru lauslega reiknað 350 m2 og er orðin lukkulegur eigandi svona ca 30 m2. Safnast saman er saman kemur segir einhversstaðar. Á möguleika á að sækja 50 m2 í víborg ef ég sæki það og tek upp líka, ég ætla aðeins að bíða með að ákveða það, þar sem vagnar í svona þungaflutninga eru ekki á hverju strái og ég svo mikið að flýta mér að ég stend ekki í keyrslu fram og til baka endalaust. Eða þannig. Það stendur til að fá hingað hörkulið í smá vinnu á laugardag á ég að gefa ykkur sýnishorn af verkefnalistanum?
knús Perlan sem flytur tonn og tonn í senn.
Bemærk at det bliver vist i dit Facebook feed, hvis du synes godt om indlægget.
|
 |
04-06-2008 23:19
|
Tags:
| Kommentarer: |
4 |
| Visninger: |
403 |
|
|
06-08-2008 16:57, 2 kommentarer
|
|
30-07-2008 09:54, 1 kommentar
|
|
29-07-2008 20:37, 0 kommentarer
|
|
28-07-2008 16:10, 5 kommentarer
|
|
09-07-2008 13:27, 0 kommentarer
|
|
25-06-2008 22:06, 0 kommentarer
|
|
18-06-2008 02:00, 1 kommentar
|
|
04-06-2008 23:19, 4 kommentarer
|
|
29-05-2008 10:09, 1 kommentar
|
|
24-05-2008 22:14, 1 kommentar
|
Funktioner:
|
| |
|