alltaf eitthvað...
Já smá upplýsingar, ég hef voða lítið gert, vegna þess að það má ekki hreyfa við miklu.  En allavega þá kom maður sem hefur með rör að gera í gær vegna þess að ég hélt að það væri raki í vegg.  Hann og ég í sameiningu urðum sammála um að það væri líklega gamall skaði og ekkert við því að gera nú.  Jæja við fundum ekki leka þann sem skaðinn hefur á sínum tíma hefur hlotist af.  En svo fór hann að rannsaka önnur mál fyrst hann var nú kominn.  Þá kom í ljós að þrýstikúturinn á miðstöðinni er ónýtur, þess vegna fylli ég á hann 1 - 2 í mánuði í stað 1 - 2 á ári.  Smá munur.  Svo sá hann klóakið og staðhæfði að rörin snúa vitlaust.. sem þýðir að þar sem þau koma saman er hætta á að eitthvað festist.  Ekki nóg með það þá þarf vatnið að renna upp, sem kannski er stundum erfitt.  Jæja ég er nú ekki alveg viss um að þetta sé klóakið sem hann er viss um.  Burt frá því þá tékkaði hann þrýsting á vatninu til að vera viss um að það væri ekki leki á kerfinu sem gæti valdið skaða.  Og ekkert er að heitavatns sísteminu, en það er leki á því kalda.  Nú þarf að finna hann með sérstökum aðferðum sem ég hef afar lítinn skilning á.  Og þar eftir að meta hver og hvernig verður staðið að úrbótum.   Þá vitið þið það.  
Tryggingamaðurinn sem er í klóakinu er voða þreyttur og þegar ég hringdi í hann í gær hafði hann ekkert litið á mín mál.  En lofaði að gera það í dag.
Svo hringdi í mig maður frá gasfyrirtækinu og tilkynnti mér að miðstöðin er kolólögleg, ég má ekki keyra á henni því að hún átti að undirgangast skoðun í okt á síðasta ári sem enn hefur ekki fundið stað.  Ég sagði að nú væri hún á leið út og hvort þá væri nauðsynlegt að framkvæma þessa skoðun.  Við vorum sammála um að það væri ekki nauðsynlegt.
Ég er annars bara í dútli úti í garði.  Er að fræsa upp blómabeð og vonast til að geta búið til beð úr ógeðinu sem er í beðunum ef ég blanda það með hestaskít og þannig skít.  Ekki furða að blómin séu hálf grisjótt því moldin er hörð sem steinn og hvað vex í svoleiðis undirlagi.  
Svo það er af nógu að taka hér sem fyrr.

Já knús héðan ur sól, sumaryl og klóakfýlu.  Perla
Bemærk at det bliver vist i dit Facebook feed, hvis du synes godt om indlægget.
Kommentarer Viser 1 / 1 | Vis alle
Du skal logge ind for at kunne skrive en kommentar
Log ind og returner til denne side
Gestur
Gestur, 30-05-2008 10:06
Sæl elsku Perla mín.
JA hér. En vonandi fer nú eitthvað jáhvætt að ské í húsaviðgerðum hjá þér elsku dúllan mín. Þvílík handvön á öllu sem gert hefur verið, hvað er langt síðan wc var sett upp? Vonandi geturðu skemt þér í garðinum á meðan karlar laga rör sem snúa öfugt og vatn sem vill ekki renna upp í mót. KKK til ykker mamma amma.
Stem:
af Perlan
29-05-2008 10:09
Tags: 
 
Sider der linker til dette indlæg
Kommentarer: 1
Visninger: 364
 
Tidligere indlæg:
 
06-08-2008 16:57, 2 kommentarer
 
30-07-2008 09:54, 1 kommentar
 
29-07-2008 20:37, 0 kommentarer
 
28-07-2008 16:10, 5 kommentarer
 
09-07-2008 13:27, 0 kommentarer
 
25-06-2008 22:06, 0 kommentarer
 
18-06-2008 02:00, 1 kommentar
 
04-06-2008 23:19, 4 kommentarer
 
29-05-2008 10:09, 1 kommentar
 
24-05-2008 22:14, 1 kommentar
 
Funktioner:
Anmeld misbrug
Send til ven
 
RSS feed for blog indlæg
© 2006-2010 VIX ApS | Retningslinjer | Copyright informationAnnoncering | Ledige stillinger | Om siden