
í dag kom ég inn kl 23 30 kolniðamirkur en ég var í stríði, við brenninetlur og í myrkeinu gátu þær ekki séð mig. Svo að þessu sinni með hrífu að vopni voru þær felldar ein á eftir annari, svo verður lokaslagurinn háður á morgun.
Önnur barátta er skógurinn minn ógurlegi, í kvöld féllu ansi margar greinar, í hálfrökkrinu, undirbúningur undir netluorustuna, felldi ansi gott skarð í þessari flækju sem má svo sem kalla skóg ef það hentar. Þetta eru nú mest bara spírur að reyna að teygja sig eftir sól, dautt hekk, öðrumegin, vegna sólarleysis og rotnuð tré, ætli það sé ekki næsta teiti að slást við hann. Enda hvorki fallegt, né gagnlegt. Mig langar í ávaxtatré.
Garðurinn var karsaklipptur í dag, tók nákvæmlega 2 og 1/2 tíma, trúið því eða trúið ekki.
Hér er unnið frá morgni til kvölds og oft þreytt fólk sem sefur hér í húsinu.
Hugsa að það komi bara myndir á morgun, er frekar sólbrennd og hálf þreytt enda kominn tími á koju núna. En ég lofa að það koma fyrir og eftrir myndir af allavega múrsteina flutningum, sem ég er mjög stolt af að hafa loks fjarlægt, og hver veit nema ég geti monntað mig af fleiru á morgun ...
Enginn frá tryggingunum hefur enn hringt og sagts munu koma og hjálpa litlu stelpunni með klóakið, því miður. En nágrannar koma með algerlega gagnslausar athugasemdir þegar vinnutæki garðsins koma að litlu gagni, og komment um hvað á að gera og hvað á ekki að gera. Finnst nú frekar óþægilegt þegar fólk er að gefa algerlega óumbeðin ráð, þegar það hefur ekki sett sig inn í stöðu mála. Bara smá raus hér í restina. hihi
knús og sólarkveðjur heim á frón. Perla.
Bemærk at det bliver vist i dit Facebook feed, hvis du synes godt om indlægget.